Thursday, April 20, 2017

Er gerast kvöldin dimm og löng

Sólin er að setjast. — Rökkurskuggainir eru þegar byrjaðir að teygja út armana. — Syrtir að í lofti. Mér er sem eg heyri dyn mikinn, sem af vængjataki. — Það er nóttin. Það fer um mig hrollur, eg flýti mér heim. — Eg kemst ekkert áfram, einlægur árekstur, hamingjan góða! Hvar eru götuljósin? spyr ég sjálfan mig og ætla að fara að blessa yflr bæjarstjórnina, en þá man ég það að hún er engin til hérna á Bakkanum, já, það var nú verra gamanið. Hver á þá að kveikja? Hreppsnefndin sagði einhver. Já, það hlýtur þá vist að vera hún, já, guð blessi hreppsnefndina, segi eg, hún veit hvað hún hefir að gera. — En það verður ekki kveikt á engu, maður lifandi, — onei, nei, fyrst að enginn vill taka sig fram um að nota vindinn, já það var líka satt, hann hefði ekki annað að gera en kveikja á kvöldin, nægur tími til fyrir hann, að sækja í sig veðrið í útsynningnum allan daginn og kveikja svo á kvöldin. — Hefir nokkur farið fram á það við hann „herra Storm", að hann gerði eitthvað til gagns, nei nei blessaður, — en hann á þó ef til vill, eða gæti átt rafurmagn í pokahorninu ef látið væri við hann beislið? Já, ekki vil eg nú bíða eftir þvi, og heldur fara í hreppsnefndina og eg læt ekki sitja við orðin tóm, og sest undir gluggana hjá henni og syng hana í svefn, geri henni galdra og risti henni rúnir, ef hún fer ekki að hugsa fyrir götuljósum áður en eg verð búinn að mola í mér hauskúpuna og skaðskemma nefið á náunganum. Mér er annars full alvara, eg ætla að biðja blessaða hreppsnefndina ósköp vel, að gleyma ekki þeim fáu, sem eru Ijóssins börn, en láta hitt ruslið sjá um sig sjálft — og hugsa fyrir götuljósum áður en mesta skammdegismyrkrið skellur á. Já, því má hún ekki gleyma.

Eftir óþekktan Eybekking.

No comments: