Saturday, April 22, 2017

Eyrbekkingar missa tvo báta.

Þann 15. maí  1929 strandaði mótorbáturinn „Olga" frá  Eyrarbakka við Þorlákshöfn. Skipverjar, 2 að tölu, björguðust ómeiddir í land, en  báturinn eyðilagðist. Olga ÁR-166 var 9,09 brl. Með10 ha. Dan-vél. Smíðaður í Fredriksund í Danmörku 1908. Olga bar áður einkennisstafina VE 139 og var keyptur frá Vestmannaeyjum 1919, en það voru þeir Páll Guðmundsson, Sandvík, Torfi Sigurðsson, Einarshöfn, og Ingvar Guðmundsson á Grimsstöðum sem keyptu bátinn. Árið 1926 keypti Jón Jónsson frá Hliðarenda bátinn.
Þann 13. ágúst 1929 sökk mótorbáturinn „Halkion" frá  Eyrarbakka við land á Siglufirði. Hafði rekist á hafís i Húnaflóa og laskast. Skipverja sakaði ekki. Báturinn var keyptur til Eyrarbakka 1918, en eigandur voru Vilbergur Jóhannsson, Helgafelli. Og Jóhann V Daníelsson.

Togarar nokkrir sem farist hafa. „Leifur heppni“ 8. febr. 1925. Fórst á rúmsjó. „Ása“ 20. des. 1925. Við  Jökul. „Eiríkur  rauði“ 2. marz 1927. Við Sandana. „Ása“ 3. apríl 1927. Við Grindavík. „Austri“ 7.  septbr. 1927; Við Vatnsnes  nyrðra. „Jón forseti“ 27. febr. 1928. Við Stafnes. „Menja“ 12.  júní 1928. Sökk á  rúmsjó. „Apríl“ 1. des. 1930. Fór st á  rúmsjó. „Barðinn“  2 1. ágúst 1931. Við Þjót. „Leiknir“  fórst 2 1. nóvbr.1931 Við Kúðaós.

No comments: