Thursday, April 20, 2017

Létu fyrirberast úti á rúmsjó

Að morgni 13.apríl 1926 reru 17 bátar af Eyrarbakka og Stokkseyri. Þegar á daginn leið gerði  landsynningsrok og brim svo mikið, að aðeins nokkrir bátar gátu  lent heima, (aðeins 5 bátar náðu höfn á Stokkseyri og 4 á Eyrarbakka) en hinir urðu að láta  fyrirberast úti á rúmsjó. Þegar heimamönnum þótti sýnt, að bátarnir gátu ekki náð landi var símað til stjórnarráðsins og það beðið að hlutast til um það, að varðskipið "Fylla" og önnur skip, sem til næðist væru beðin að koma bátunum til hjálpar. Var þá strax sent skeyti til allra skipa á þessu svæði og þau beðin að líta eftir bátunum. Strax um kvöldið voru fimm íslenskir togarar komnir á vettvang til hjálpar, þeir Skallagrímur, Belgaum, Hannes ráðherra, Earl Kitchener og Gyllir. Tók Gyllir einn bátinn „Trausta" og dróg hann til Reykjavíkur, en Skallagrímur bjargaði áhöfninni af „Öðlingi", bát frá Eyrarbakka (vélbátur Árna Helgasonar í Akri). Liðaðist hann sundur og sökk, (skipsflakið rak á land við Grindavík) en skipverjar komu með togaranum "Skallagrími" til Reykjavíkur. Belgaum, Hannes ráðherra og Earl Kitchener fylgdu hinum 7 bátunum, sem eftir voru til Vestmannaeyja.

No comments: