Friday, April 21, 2017

Mennirnir sem fórust með Víði VE

Vestmannaeyjar
Sunnudagsmorguninn 6.  f ebr. 1938  reru  flestir bátar úr Eyjum. Um  k l. 10  skall á  versta  veður og rofaði  ekki til  fyrr en kl. hálf fjögur e.h. Í þessu veðri fórst „ Víðir" úr  Vestmannaeyjum,  með 5  manna  áhöfn.  Skipverjar  voru  allir  ungir  menn og  ókvæntir, en meðal þeirra voru tveir Eyrbekkingar. Formaðurinn var Gunnar Guðjónsson úr Vestmannaeyjum. Vélstjóri var bróðir  hans, Gísli Guðjónsson. Móðir þeirra, Halla  Guðmundsdóttir,  hafði þá misst fjóra syni  sína í  sjóinn. Hásetar á  „ Víði"  voru Jón Markússon  úr  Eyjum. Jón  Árni  Bjarnason frá  Tjörn á  Eyrarbakka og Hallur  Þorleifsson frá  Eyrarbakka.

Ægir 1938

No comments: