Thursday, April 20, 2017

Nolsoy ferst við Eyrarbakka

Tvær Færeyskar skútur, sem voru að veiðum hér við land, fórust í stormi 7. mars 1934 með samtals 43 mönnum. Voru það skúturnar „Neptun“ frá Vestmanhavn og „ Nolsoy“ frá Þórshöfn. Þann 31. maí það ár rak lík hjá Stóra-Hrauni á Eyrarbakka og var talið að það hafi verið af matsveininum á  kútter „Nolsoy“. Likið var óþekkjanlegt er  það fannst, en trúlofunarhringur, sem af tilviljun hafði tollað á fingri  hins  látna,  var  sendur til Færeyja og þektist. Hin látni hét Bernhard Henriksen og var frá Sandvági í Færeyjum. Hinn 21. maí 1936 kom minnisvarði með m/s. „Dronning Alexandrine“, sem Færeyingar sendu og láta átti á leiði hans, en líkið var  jarðsett i  Eyrarbakkakirkjugarði og var vandað til  jarðarfararinnar eins og kostur var á. Með „Nolsoy“ fórust alls 20 menn, bræður margir og feðgar, og eru nöfn  þeirra  allra  rituð á steininn, og eftirfarandi  erindi á  undirstöðu  hans:

Mugu  enn við sorg vit siga
kærum  vinum  her farval.
Góðandagin gleðiliga
tó í himli ljóða skal.

Auk Færeyinga, átti  þáverandi sendiherra Dana, Fontenay og  consul Jens Zimsen,  sinn þátt í að minnismerkinu yrði hingað komið, og  annaði  Zimsen bæði flutning  austur og sá  um, að því var komið fyrir á gröf  Bernhards Henriksens og var gengið frá því í  Eyrarbakkakirkjugarði þann 3.  júní 1936.
Auk Bernhards fórust með kútter Nolsoy: J. Henriksen, H.D. Hansen, V. Hansen, E. Hansen, M.Hansen, A.  Danberg, J. Olsen, M. Petersen, P. Poulsen, J.P. Petersen, M. Johansen, H. Leidesgaard, U.A. Johansen, M. Poulsen, J.G. Petersen, O.J. Jakopsen.


Heimild: Morgunbl.138 tbl 1934. Brot úr sögu Mykinesar

No comments: