Thursday, April 20, 2017

Þorleifur ríki var slýngur sem tófan

Einhverju sinni bar svo við þegar gangandi menn á leið til Eyrarbakka frá Þorlákshöfn fóru um Hafnarskeið, gengu fram á tófu þar á sandinum, spölkorn frá ferjustaðnum er þá var við lýði. Tófan virtist steindauð og sperti allar lappir í loft upp. Einn þeirra tók tófuna og bar með sér út að ferju og hugðist  flá refinn er heim kæmi. Lét hann dýrið liggja upp í barka bátsins meðan róið var yfir ósinn. Þegar bátinn kenndi grunns í Nesi, spratt tófan á fætur og stökk í land og höfðu þeir sem til sáu ekki meira af henni að segja.


Haustið 1868 Kemur maður til Þorleifs á Háeyri og segist vilja hafa  skipti á smjöri og tólg. Þorleifur kvaðst vilja skipta við hann þannig, að hann fengi eitt pund af smjöri fyrir eitt pund af tólg. Segir þá maðurinn: „Haldið þér að ég hafi ábata á þessu?" ,,Nei," sagði Þorleifur. „Ég held þér hafið skaða á því; en þér eruð sjálfráðir um þetta." Maðurinn labbaði þegjandi í burtu.

No comments: