Thursday, April 20, 2017

Saga póstafgreiðslunnar á Eyrarbakka

Pósthirðing var á Eyrarbakka um 1880, en hún heyrði undir póststofuna í Hraungerði í Flóa. Póstafgreiðsla var síðan sett á Eyrartbakka 1912. Hún var staðsett í Kirkjuhúsi 1925, en þá var póstmeistari  Sigurður Guðmundsson bóksali. Sparisjóður Árnessýslu var til húsa á sama stað. Þann 1. maí 1942 var póstur og sími sameinaður á Eyrarbakka og stuttu síðar á Stokkseyri.  Símstöð var  frá 1909 og var Oddur Oddson gullsmiður fyrsti símstöðvastjórinn.  Á tímum landpóstsins komu þeir að sjálfsögðu við á Bakkanum og blésu í lúður sinn þegar þeir nálguðust Vesturbúð. Flestir voru þeir viðfrægir og sumir sérstakir. Einn Eyrbekkingur var landpóstur en hann hét Klemenz og var sonur Þorsteins bónda á Stóra-Hrauni Péturssonar, en móðir hans var Ingunn Klemenzdóttir skipasmiðs í Einarshöfn.  Klemmi-póstur varð úti 1791 í Jórugili í Grafningi.  Fljótlega eftir að Póstur og Sími var seldur frá ríkinu um síðustu aldamót var símstöðin í Mörk lögð niður, en póstafgreiðsla var til skams tíma í verslun, er þá hét Ásinn. 

No comments: